Spegilmyndir á votu malbiki
Öskur tunglsins í nóttinni
Grátur eldsins inni í sólinni
Fegurðin kemur frá sálinni
Sólin svíður svarta moldina
Líf sprettur af svitanum
Títóismi knýttum bökum
Eitt lítið
Eitt lítið serbneskt blóm
Skuggar kvöldsins kæla herðarnar
Ljósin kyssa gluggana
Bjarminn frá eldinum sýnir rúnirnar
Ristar í andlitum mannanna
Með svefninum koma minningar
Votar grafir hetjurnar
Títóismi knýttum bökum
Eitt lítið
Eitt lítið serbneskt blóm
Sáðmaðurinn yrkir jörðina
Hláturinn kemur frá akrinum
Móðurmjólkina sýgur sakleysið
Frelsið fæðist í hjartanu
Endurfæddur úti í auðninni
Sigurglampi í augunum
Títóismi knýttum bökum
Eitt lítið
Eitt lítið serbneskt blóm