Текстов песен в базе: 1 278 222
Hjá Þér

Hjá Þér

Sálin hans Jóns míns

Текст песни

Þegar kviknar á deginum
Og í lífinu ljós
Þegar myrkrið hörfar frá mér
Þá er eitthvað sem hrífur mig
Líkt og útsprungin rós
Þá vil ég vera hjá þér
Þegar geng ég í sólinni
Mitt um hábjartan dag
Litafegurð blasir við mér
Þegar heimurinn heillar mig
Líkt og töfrandi lag
Þá vil ég vera hjá þér
Ég vil bæði lif’og vona
Ég vil brenna upp af ást
Ég vil lifa með þér svona
Ég vil gleðjast eða þjást
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
Þá vil ég vera hjá þér
Meðan skuggarnir stækka og
Ýta húminu að
Gamall máninn bærir á sér
Vil ég eiga andartak
Inni á rólegum stað
Þá vil ég vera hjá þér
Ég vil bæði lif’og vona
Ég vil brenna upp af ást
Ég vil lifa með þér svona
Ég vil gleðjast eða þjást
Meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
Þá vil ég vera hjá þér
Ooh, meðan leikur allt í lyndi
Líka þegar illa fer
Meðan lífið heldur áfram
Þá vil ég vera hjá þér
Þegar slokknar á deginum
Yfirþyrmandi nótt
Stormar fyrir stjarnanna her
En það bítur mig ekkert á
Og ég sef vært og rótt
Ef þú vilt vera hjá mér
Þá vil ég vera hjá þér
Поделиться ссылкой:
Короткая ссылка: https://tekstpesni.ru/s/2Mz9

Тексты других песен исполнителя

© 2017–2025 Тексты песен
Все тексты песен на сайте размещены пользователями, редакцией или собраны из открытых источников.
При копировании материалов ссылка на сайт обязательна.
Связаться
Уважаемые обладатели прав на музыку! На сайте не выкладывается музыка, ее нельзя скачать, послушать и тому подобное.