Текстов песен в базе: 1 278 222
Brostið Hjarta

Brostið Hjarta

Sálin hans Jóns míns

Текст песни

Það var svo afstætt að finna til
því stundum virtist lífið mér í vil.
Í mínum heimi var aðeins eitt,
að hygla mér og mínum yfirleitt.
Á hverju kvöldi á einhverjum bar
hið ljúfa líf var hörkustundar var.
Forboðnar ástir mig gátu seitt
og þúsund andlit saman runnu í eitt.
Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
ég hef skilið eftir opið sár
og ég veit að ég á ekkert eftir
nema sjálfan mig og beiskjutár.
Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
ég hef brugðist þér á allan hátt.
Það er af sem áður en ég þráast,
segðu að þú takir mig í sátt.
Tíminn er floginn á annan stað
í hita leiksins engan grunar það.
Ég valdi glysið og gerði gott
lék mér við kölska fram á rauða nótt.
Endrum og sinnum bráði af mér
í hugskotum það birtist mynd af þér.
En ég var fastur í flæktum vef
sem allir aðrir höfðu fyrirséð
Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
ég hef skilið eftir opið sár
og ég veit að ég á ekkert eftir
nema sjálfan mig og beiskjutár.
Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
ég hef brugðist þér á allan hátt.
Það er af sem áður en ég þráast,
segðu að þú takir mig í sátt.
Hvers virði er frægðin og heimsins prjál?
Einmana sál, hún veslast upp og deyr
Ég hef skilið eftir brostið hjarta,
ég hef skilið eftir opið sár
og ég veit að ég á ekkert eftir
nema sjálfan mig og beiskjutár.
Ég hef vakið hjá þér falskar vonir,
ég hef brugðist þér á allan hátt.
Það er af sem áður en ég þráast,
segðu að þú takir mig í sátt.
Поделиться ссылкой:
Короткая ссылка: https://tekstpesni.ru/s/2Mz6

Тексты других песен исполнителя

© 2017–2025 Тексты песен
Все тексты песен на сайте размещены пользователями, редакцией или собраны из открытых источников.
При копировании материалов ссылка на сайт обязательна.
Связаться
Уважаемые обладатели прав на музыку! На сайте не выкладывается музыка, ее нельзя скачать, послушать и тому подобное.