Með hvelli þögnin greip
Öll heims míns hljóð
Ég dreg andann inn
En loftið bærist ekki hér um sinn
Tíminn er kyrr
Stundin er löng
Í þessum nýja ham
Hvar vakna ég í dag?
Hvar vakna ég?
Þó sviðinn virðist sár
Hvar vakna ég í dag?
Hvar vakna ég?
Leiddu mig nú heim
Ég dreg andann inn
En loftið bærist ekki hér um sinn
Hugur minn skýr
Ég hef séð svo margt
Í þessum nýja ham
Hvar vakna ég í dag?
Hvar vakna ég?
Þó sviðinn virðist sár
Hvar vakna ég í dag?
Hvar vakna ég?