Текстов песен в базе: 1 278 222
Meginbúðir Andans

Meginbúðir Andans

Sálin hans Jóns míns

Текст песни

Óravíddir alls eru gjöful mið
víðtæk okkar völd og valið ofurlið.
Handverk okkar er andlegt sjónarspil.
Það gefur augaleið, þau eru okkur
Lífið, til einskis lætur enginn okkur lífið.
Við njótum krafta ykkar áfram.
Svífið til móts við meginbúðir andans.
Kvíðið því ei.
Vetrarbrautarslys breytti sögunni
þó engan veginn því hver ræður ferðinni.
Víron var og hét við héldum velli þó.
Þær seðja okkur enn og eru okkur
Lífið, til einskis lætur enginn okkur lífið.
Við njótum krafta ykkar áfram.
Svífið til móts við meginbúðir andans.
Kvíðið því ei.
Sálnabúin okkar öll
orkulindirnar um aldabil.
Og við vökum yfir þeim
ella væri þetta vísast búið spil.
Það nýtast allir þar á meðal þú.
Þið eruð okkur
lífið, til einskis lætur enginn okkur lífið.
Við njótum krafta ykkar áfram.
Svífið til móts við meginbúðir andans.
Hlýðið kalli þegar kemur að því.
Lífið, til einskis lætur enginn okkur lífið.
Við njótum krafta ykkar áfram.
Svífið til móts við meginbúðir andans.
Bíðið um stund.
Поделиться ссылкой:
Короткая ссылка: https://tekstpesni.ru/s/2MzM

Тексты других песен исполнителя

© 2017–2025 Тексты песен
Все тексты песен на сайте размещены пользователями, редакцией или собраны из открытых источников.
При копировании материалов ссылка на сайт обязательна.
Связаться
Уважаемые обладатели прав на музыку! На сайте не выкладывается музыка, ее нельзя скачать, послушать и тому подобное.