Текстов песен в базе: 1 277 500
Vertu úlfur - Titillag

Vertu úlfur - Titillag

Emilíana Torrini

Текст песни

Ég berst einn í þessu stríði
Það breytir ekkert því að sól vermir heiði
Og kirkjubjöllur hringja á sunnudegi
Og fá mig til að stoppa
Eitt augnablik í friði
Vökvaðu mig
Mig þyrstir í tærleikann
Að ég fái að líða í mjúkum straumi
Eins og pilsfaldur í sumargolu
Ég vil vakna þakinn dögg
Sem hleypir sólargulli í stein
Sem situr þungur í maga mér sem fastast
Ljósið fær hann til að kristallast
Og endurspeglar hlýju um mig allan
Inn í fingurgóma
Þér vil ég þjóna
En kötturinn vill inn
Og klórar í gluggakarma
Og karmað vinnur alltaf allt og alla
Af hverju býr hjartað ekki í höfuðkúpu
Og heilinn hvílist við sefandi lungu?
Þá myndi rigna yfir heilann ástarhjúpur
Og kæla þetta sviðna hugarangur
Ég vil að þú vitir
Að hefði ég haft vitið
Hefði ég dansað við þig bara
Ég hringsólast í töfrum og skuggasælu
Þar til ég veltist um í tjöru
Og hvítum fjöðrum
Og mér heyrist eitthvert greyið vera að öskra
En öskrin hljóma ó svo kunnuglega
Vatnið sýnir spegilmynd mína
Og andlit mitt það virðist vera að rifna
Og kötturinn vill inn
Og klórar í gluggakarma
Og karmað vinnur alltaf allt og alla
Af hverju býr hjartað ekki í höfuðkúpu
Og heilinn hvílist við sefandi lungu?
Þá myndi rigna yfir heilann ástarhjúpur
Og kæla þetta sviðna hugarangur
Ég vil að þú vitir
Að hefði ég haft vitið
Hefði ég dansað við þig bara
Поделиться ссылкой:
Короткая ссылка: https://tekstpesni.ru/s/3BqT

Тексты других песен исполнителя

© 2017–2025 Тексты песен